Vanillu ástarpungar með viskí karamellusósu
- Snorri 
- Aug 21, 2021
- 2 min read
Ástarpungar eru algjör klassík sem við þekkjum öll og elskum (haha). Það tekur enga stund að henda í deigið og þeir eru afskaplega einfaldir í steikingu. Ég mæli samt sterklega með því að nota olíu og sykur hitamæli eins og þennan hér við þessa uppskrift og þá sérstaklega karamellusósuna (sem er ruglað góð).
Margir setja rúsínur út í sína ástarpunga en ég kýs að gera það ekki, það mun samt enginn stoppa þig ef þú laumast til þess.

Ástarpungar - 18-20 stk
Hveiti, 300 g
Lyftiduft, 0,5 tsk
Sykur, 30 g
Salt, 1/4 tsk
Vanillustöng, 1 stk
Egg, 2 stk
AB-mjólk, 250 g
Smjör ósaltað, 30 g
Hitaþolin olía til djúpsteikingar, 800 ml
Sykur + smá kanill til að velta upp úr.
- Bræðið smjör og látið kólna aðeins. Fræhreinsið vanillustöng. Pískið saman smjör, egg, AB-mjólk og vanillufræ. 
- Pískið saman hveiti, lyftiduft, sykur og salt í stórri skál. Blandið því næst blautblöndunni saman við þurrblönduna og hrærið þar til allt hefur samlagast. Deigið verður klístrað og nokkuð þykkt. 
- Hitið 800 ml af olíu upp í 180°C í potti. Notið ísskeið (þessar sem maður klemmir handföngin saman til að mynda kúlur) eða 2 skeiðar til þess að mynda pungana og setja varlega út í heita olíuna. Gott er að dífa skeiðunum í olíu inn á milli svo deigið festist ekki við þær. Steikið í 3.5-4 mín eða þar til pungarnir eru fallega brúnir og eldaðir í gegn. 
- Færið ástarpungana á vírgrind til að kólna aðeins og veltið svo upp úr kanilsykrinum á meðan þeir eru enn heitir. 
Viskí karamellusósa
Sykur, 200 g
Rjómi, 120 ml
Vanillustöng, 1 stk
Smjör ósaltað, 90 g
Viskí, 30 ml / Ég notaði Makers Mark
Flögusalt, 0,5 tsk
- Fræhreinsið vanillustöngina og hrærið fræjunum saman við rjómann. 
- Setjið sykur í lítinn pott ásamt 60 ml af vatni. Hellið vatninu varlega yfir sykurinn svo enginn sykur skvettist upp í kantana á pottinum því það getur valdið því að sykurinn kristallist og skemmist þegar hann fer að sjóða. 
- Stillið á miðlungshita og látið bubbla án þess að hræra í sykrinum þar til sykurinn verður að karamelllu, þetta getur tekið nokkrar mínútur en alls ekki fara frá pottinum því hluturnir geta gerst hratt og skyndilega. Hægt og rólega ætti liturinn á sykrinum að verða ljósbrúnn og dökkna svo í framhaldinu. Þetta byrjar að gerast við 160°C. 
- Takið pottinn af hitanum þegar liturinn er farinn að minna á hlynsíróp en áður en hitinn nær 180°C. Hafið þá hraðar hendur. 
- Hellið rjómanum hægt og rólega saman við karamelluna og pískið vel á meðan svo hann samlagist karamellunni. Karamellan mun bubbla kröftuglega og hleypa frá sér gufu þegar rjómanum er bætt við. Farið því varlega! 
- Pískið smjörið næst saman við karamelluna og að lokum viskí og flögusalt. 
- Færið karamelluna í skál eða krukku og látið kólna til fulls. Karamellan mun þykkna töluvert þegar hún kólnar. 







Comments