top of page

Hættulega góð súkkulaði & lakkrís Omnom Krunch brúnka

Updated: Sep 16, 2019

Ef þú elskar lakkrís súkkulaðið frá Omnom þá er þetta brúnku uppskrift fyrir þig!


Hér nota ég gömlu góðu brúnku uppskriftina mína sem er búin að sanna sig í gegnum árin en bæti út í hana krömdu Omnom lakkrís crunch, en það gefur henni þetta frábæra lakkríssúkkulaði bragð og skemmtilega áferð. Alveg hættulega gott!


Smjör, 115 g

Kakóduft, 50 g

Sykur, 125 g

Púðursykur, 125 g

Vanilludropar, 1 tsk

Egg, 2 stk

Salt, 1/4 tsk

Hveiti, 60 g

Lakkrís Omnom Krunch, 1 poki

Súkkulaðibitar, 1 dl (75 g) / T.d. Ghirardelli eða Kirkland

 
  1. Hitið ofn í 180 °C.

  2. Smyrjið 20 cm brúnkuform með smjöri og leggið bökunarpappír í formið svo auðveldara sé að ná kökunni upp úr því.

  3. Bræðið smjörið og pískið því vandlega saman við kakóduft, sykur, púðursykur og vanilludropa. Pískið svo 1 eggi í einu saman við blönduna þar til áferðin er orðin slétt.

  4. Hrærið hveiti og salti saman við blönduna þar til allt hefur samlagast.

  5. Setjið lakkrís Omnom Krunch í poka og berjið það með t.d. kökukefli þar til allar kúlurnar eru brotnar.

  6. Blandið súkkulaðibitum og brotnu Omnom Krunch saman við blönduna og hellið henni svo í brúnkuformið.

  7. Bakið kökuna í um 22 mín í miðjum ofni eða þar til tannstöngull kemur nánast hreinn úr miðju kökunnar.

  8. Leyfið brúnkunni að kólna áður en hún er fjarlægð úr forminu og skorin í bita. Mér þykir best að setja kökuna aðeins inn í ísskáp áður en ég sker hana, en þá er auðveldara að skera hana í fallega bita

bottom of page