Nutella kleinuhringir
- Snorri 
- Apr 21, 2024
- 1 min read
Hér er komin sannkölluð veisla fyrir Nutella og súkkulaði unnendur. Sáraeinfaldir en sjúklega góðir bakaðir Nutella kleinuhringir sem gera alla daga betri!

Gerir 10-12 kleinuhringi:
140 g hveiti
25 g kakóduft
70 g sykur
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1 vanillustöng
30 g smjör
80 ml mjólk
60 ml jógúrt
1 egg
Nutella 4 msk
Glaze:
Nutella 3 msk
Flórsykur, 10 g
Nýmjólk, 2-4 msk
Súkkulaðispænir til skrauts
- Forhitið ofn í 175°C með yfir og undirhita. 
- Pískið saman hveiti, kakóduft, sykur, salt, lyftiduft og matarsóda. 
- Skerið vanillustöng í tvennt og skafið fræin úr henni. Bræðið smjör við. Pískið saman, smjör, mjólk, jógúrt, egg og vanillufræ. 
- Pískið blautblöndunni saman við þurrefnablönduna þar til allt hefur samlagast (varist að ofhræra blönduna). 
- Færið deigið í sprautupoka eða smellupoka og klippið gat í eitt hornið svo auðvelt sé að sprauta út deiginu. 
- Spreyið 2 kleinuhringjaform með matarolíu. 
- Fyllið hvert mót hálfa leið upp af deigi. Dreifið nutella í nokkrum doppum yfir deigið og hrærið aðeins í því með t.d. tannstöngli svo það dreifist aðeins betur um deigið. 
- Bakið í miðjum ofni í 9-10 mín og látið kólna í smástund áður en kleinuhringirnir eru fjarlægðir úr mótinu. 
- Pískið saman nutella, flórsykur og mjólk eftir þörfum þar til glaze’ið er hæfilegt að þykkt svo hægt sé að dýfa kleinuhringjunum í það. 
- Gott er að hita glaze’ið smá áður en það er notað því þá mun það þorna aðeins stífara. 
- Skreytið kleinuhringina með sukkúkkulaðispæni eftir smekk um leið og búið er að dýfa þeim í glaze’ið. 







Comments