Ef þú elskar súkkulaði og hnetusmjör þá er þetta uppskrift fyrir þig! Silkimjúk súkkulaðimús með ómætstæðilegri hnetusmjörskaramellu gerðri úr hlynsýrópi og mjúku hnetusmjöri. Algjör drauma desert þegar gera á vel við sig og sína.
Fyrir 4:
Hnetusmjörs karamella:
Hlynsýróp, 120 ml
Mjúkt hnetusmjör, 80 ml
Rjómi, 50 ml
Salthnetur, 80 ml
Súkkulaðimús:
Rjómi, 250 ml
Súkkulaði 70%, 50 g
Mjólkursúkkulaði, 50 g
Eggjarauður, 2 stk
Sykur, 2 msk
Vanilludropar, 1 tsk
Topping:
Þeyttur rjómi
Súkkulaðispænir
Saxið salthnetur, þó ekki mjög smátt.
Setjið hlynsýróp í lítinn pott og náið upp suðu.
Hrærið hnetusmjöri saman við þegar hlynsýrópið byrjar að freyða og hrærið þar til hnetusmjörið hefur samlagast sýrópinu. Látið malla rólega í 1-2 mín.
Bætið rjóma út í, hrærið vandlega og látið malla í nokkrar mín þar til blandan þykkist aðeins (karamellan þykknar líka meira þegar hún kólnar).
Hrærið að lokum salthnetunum saman við, skiptið karamellunni á milli 4 glasa/skála og látið kólna á meðan súkkulaðimúsin er útbúin.
Skerið súkkulaði gróflega og bræðið í örbylgjuofni. Hitið í 15 sek í einu og hrærið á milli þar til það er full bráðið.
Setjið eggjarauður, 100 ml af rjóma, 1 msk sykur og vanilludropa í lítinn pott. Stillið á miðlungshita og hrærið þar til blandan er farin að þykkna nógu mikið til að hylja bakið á skeið, 3-4 mín. Varist að láta blönduna sjóða.
Hrærið bráðnu súkkulaði saman við og sigtið blönduna í skál. Leyfið að kólna.
Þeytið restina af rjómanum með restinni af sykrinum og blandið svo varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju.
Deilið á milli skálanna/glasanna með hnetusmjörs karamellunni og kælið í amk 2 tíma.
Toppið með þeyttum rjóma og rífið súkkulaði yfir rétt áður en desertinn er borinn fram.
Comments