Gullfallegt ungnautafille eldað sous vide til fullkomnunar með rósmarín og hvítlauk. Borið fram með stökkum kartöflubitum, koníaks- grænpiparsósu og fersku salati. Tilvalinn kvöldverður þegar gera á vel við sig og sína.
Við fyrstu sýn líta 30 grömm af borðsalti út eins og yfirdrifið magn af salti út í pottinn fyrir kartöflurnar en það sem saltið og vatnið gera í þessum hlutföllum er að salta kartöflurnar akkúrat passlega alveg í gegn áður en þær eru huldar smjöri og ofnbakaðar þar til þær eru gylltar og stökkar að utan en mjúkar að innan. Algjört nammi!
Fyrir 2:
Ungnauta framfille, 2x 250 g
Rósmarín, 1 grein
Hvítlauksrif, 3 stk
Kartöflur, 500 g
Borðsalt, 30 g
Smjör, 30 g
Skalottlaukur, 1 stk
Rjómi, 250 ml
Nautakraftur duft, 1.5 tsk
Græn piparkorn í kryddlegi, 2 msk
Koníak, 25 ml
Salatblanda, 30 g
Smátómatar, 60 g
Fetaostur, 25 g
Stillið sous vide tækið á 53 °C fyrir medium rare eldun. Saltið og piprið kjötið rausnarlega og kremjið hvítlauksrifin lauslega. Setjið kjötið, hvítlaukinn og rósmaríngreinina í poka sem hægt er að loka og lofttæma. Lofttæmið pokann vel og setjið í vatnsbaðið í 1 klst.
Stillið ofn á 200C með blæstri. Skerið kartöflur í munnbitastærðir. Setjið akkúrat 1 líter af vatni ásamt 30 g af borðsalti í pott og náið upp suðu. Bætið kartöflum út í pottinn og sjóðið í 8 mín. Sigtið vatnið frá kartöflunum og dreifið þeim yfir hreint eldhússtykki þar sem þær fá að hvíla í 2-3 mín.
Bræðið smjörið í sama potti og kartöflurnar voru soðnar og veltið kartöflunum svo varlega upp úr smjörinu þar til hver biti er vel hulinn smjöri. Dreifið kartöflunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 30-40 mín eða þar til þær eru orðnar gylltar og stökkar að utan en mjúkar að innan. Hrærið í þegar tíminn er hálfnaður.
Saxið skalottlauk mjög smátt. Hitið um 1 tsk af olíu í litlum potti við vægan hita og steikið skalottlaukinn þar til hann er glær og mjúkur. Bætið Rjóma, grænum piparkornum (án vökvans) og nautakrafti út í pottinn og látið malla rólega í um 20 mín eða þar til rjóminn er búinn að þykkjast svolítið.
Fjarlægið kjötið úr pokanum og þerrið það vel á öllum hliðum. Hellið vökvanum sem hefur myndast í pokanum út í sósuna ásamt koníakinu. Hækkið hitann á sósunni og látið krauma þar til hún hefur þykkst passlega. Hrærið nokkrum dropum af sósulit saman við ef vill og smakkið til með salti ef þarf. Ef sósan þykkist of mikið má bæta við hana smá vatni og hræra vel.
Hitið pönnu við háan hita og kveikið á viftunni við eldavélina. Þegar pannan er orðin sjóðheit, bætið þá 1 msk olíu og smjörklípu út á pönnuna. Setjið kjötið á pönnuna og brúnið í um 30 sek á hvorri hlið.
Sneiðið tómata og rífið salat eftir smekk. Setjið í skál með fetaosti og blandið vel saman.
Commentaires