top of page

Smokey chipotle pulled pork borgarar

Ómótstæðilegir pulled pork borgarar með smokey chipotle Bulls-Eye BBQ sósu, heimalöguðu hrásalati, frönskum og spicy majó. Þessi uppskrift gerir helling af pulled pork sem er kjörið að eiga í frystinum. Svo má líka bara skala uppskriftina að meðlætinu upp og halda veislu!


Fyrir 4.


Pulled pork:

Grísahnakki, heill og úrbeinaður, 2,25 – 2,5 kg / Fæst t.d. í Costco

Kjúklingakraftur duft, 1 msk / Oscar

Góður bjór, 330 ml

Cumin, 1 msk

Hvítlauksduft, 1 msk

Reykt paprika, 1 msk

Chipotle pipar, 0,5 msk / Má sleppa

Paprikuduft, 0,5 msk

Flögusalt, 2 msk

Púðursykur, 5 msk


Hrásalat:

Rauðkál, 150 g

Gulrót, 1 lítil

Heinz majónes, 4msk

Borðedik, 2 tsk


Spicy majó:

Heinz majónes, 6 msk

Tabasco Sriracha, 2 tsk

Hvítlauksduft, 0,5 tsk


Samsetning:

BULLS-EYE: Smokey chipotle, 1 flaska

Kartöflu hamborgarabrauð, 4 stk

Heinz majónes, 4 msk

Súrar gúrkur, eftir smekk

Aviko super crunch franskar, 1 poki



Pulled pork:

  1. Forhitið ofn í 150°C á blæstri

  2. Hrærið saman öllu kryddinu, salti og sykur fyrir pulled pork.

  3. Setjið grísahnakkann í steypujárnspott með loki og nuddið vel með kryddblöndunni á öllum hliðum. Hellið bjórnum meðfram grísahnakkanum og bætið kjúklingakraft út í vökvann.

  4. Bakið grísahnakkann undir loki í miðjum ofni í 4-5 klst eða þar til kjötið er orðið lungamjúkt og auðvelt er að rífa það í sundur með 2 göfflum.

  5. Takið kjötið úr pottinum og rífið í sundur. Fleygið bitum sem eru mestmegnis fita. Færið kjötið aftur í steypujárnspottinn og veltið upp úr bragðmiklum vökvanum sem þar er. Smakkið til með salti ef þarf.

  6. Hækkið hitann á ofninum í þá stillingu sem þarf fyrir frönsku kartöflurnar.


Hrásalat:

  1. Sneiðið rauðkál mjög þunnt, helst með mandolíni (farið varlega!) og rífið gulrót. Hrærið saman majónes og borðedik fyrir hrásalatsdressinguna og blandið vel saman við rauðkálið og rifnu gulrótina skömmu áður en maturinn er borinn fram. Smakkið til með salti.


Spicy majó:

  1. Hrærið saman majónes og Tabasco sriracha sósu


Samsetning:

  1. Bakið franskar kartöflur eftir leiðbeiningum á poka. Ristið hamborgarabrauðin á heitri pönnu í stutta stund þar til þau eru fallega gyllt.

  2. Takið 600 g af pulled pork og blandið 1 dl af BULLS-EYE Smokey chipotle saman við.

  3. Smyrjið topp hamborgarabrauðin með 1 msk af majónesi og botn brauðin með 1 msk af chipotle sósu. Raðið svo kjöti, súrum gúrkum og hrásalati í brauðin.

  4. Berið fram Smokey chipotle pulled pork borgara með frönskum og spicy majó.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

bottom of page