Skotheld súkkulaði brúnka
- Snorri 
- Jun 14, 2019
- 1 min read
Updated: Jun 15, 2019
Það er fátt betra en góð brúnka og ísköld mjólk en þessi hérna er alveg skotheld og slær í gegn í hvert sinn sem ég býð upp á hana.
Butterscotch bitarnir eru æðislegir út í kökuna en ef þeir eru ekki til má nota meira af súkkulaðibitunum og/eða bæta við grófsöxuðum hnetum.
Ég mæli með því að fjárfesta í 20 cm brúnkuformi fyrir þessa uppskrift ef það er ekki til á heimilinu en ég fékk mitt hjá Allt Í Köku.

Smjör, 115 g
Kakóduft, 50 g
Sykur, 125 g
Púðursykur, 125 g
Vanilludropar, 1 tsk
Egg, 2 stk
Salt, 1/4 tsk
Hveiti, 60 g
Súkkulaðibitar, 1 dl (75 g) / Ghirardelli, fást í Hagkaup
Butterscotch bitar, 1 dl (75 g) / Nestlé, fást í Hagkaup
- Hitið ofn í 180 °C. 
- Smyrjið 20 cm brúnkuform með smjöri og leggið bökunarpappír í formið svo auðveldara sé að ná kökunni upp úr því. 
- Bræðið smjörið og pískið því vandlega saman við kakóduft, sykur, púðursykur og vanilludropa. Pískið svo 1 eggi í einu saman við blönduna þar til áferðin er orðin slétt. 
- Hrærið hveiti og salti saman við blönduna þar til allt hefur samlagast. 
- Blandið súkkulaði og butterscotch bitum saman við blönduna og hellið henni í brúnkuformið. 
- Bakið kökuna í 20-22 mín í miðjum ofni eða þar til tannstöngull kemur nánast hreinn úr miðju kökunnar. 
- Leyfið brúnkunni að kólna áður en hún er fjarlægð úr forminu og skorin í bita. 






Comments