top of page

Saltaðar súkkulaði smákökur

Gómsætar súkkulaðismákökur toppaðar með sjávarsalti sem gleðja jafnvel hina hörðustu súkkulaðigrísi.


Að toppa kökurnar með ögn af sjávarsalti áður en þær eru bakaðar setur punktinn algjörlega yfir i’ið og og passar alveg sérstaklega vel við súkkulaðið.

Smjör, 200 g / Við stofuhita

Hveiti, 250 g

Kakóduft, 30 g

Matarsódi, 5 g

Salt, 1 g

Kanil, 0,5 tsk / 1,25 g

Muscavado sykur, 250 g / Eða venjulegur púðursykur

Sykur, 60 g

Egg, 2 stk

Vanilludropar, 1 tsk

Súkkulaði 56%, 200 g

 
  1. Sigtið saman hveiti, kakóduft, matarsóda, salt og kanil.

  2. Hrærið smjör, sykur og muscavaco sykur í hrærivél þar til blandan er mjúk og kremkennd.

  3. Bræðið 100 g af súkkulaði yfir vatnsbaði.

  4. Bætið eggjum, vanilludropum og bræddu súkkulaði út í sykurblönduna og hrærið þar til allt hefur samlagast.

  5. Bætið þurrefnablöndunni út í og látið vélina ganga rólega þar til allt hefur samlagast. Þetta er best að gera í 2-3 skömmtum. Varist að ofhræra blönduna.

  6. Grófsaxið restina af súkkulaðinu og hrærið saman við kökudeigið og setjið deigið svo inn í kæli í 1 klst.

  7. Hitið ofn í 160 °C

  8. Myndið 9x 30 g kúlur og raðið með góðu bili á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Geymið restina af deiginu í kæli á meðan kökurnar bakast.

  9. Fletjið kökurnar aðeins niður með lófanum og dreifið örlitlu sjávarsalti yfir hverja köku.

  10. Bakið í 10-12 mín og leyfið kökunum að kólna í nokkrar mín áður en þær eru fjarlægðar af ofnplötunni.

  11. Endurtakið með restina af deiginu.


bottom of page