top of page

Risarækju alfredo með beikoni og ristuðum panko raspi

Safaríkar risarækjur, stökkt beikon og linguine í djúsí hvítvínslagaðri alfredo sósu. Toppað með ristuðum panko raspi og sendir bragðlaukana á flug. Þessi réttur tékkar í öll réttu boxin. Fljótlegur, einfaldur og sérstaklega ljúffengur!


Mæli með að gera þennan um helgina, eða alla daga vikunnar, þú ræður!



Risarækjur, 400 g

Beikon, 70 g

Parmesan ostur, 30 g

Hvítlaukur, 3 rif

Linguine, 250 g

Hvítvín, 1 dl

Skalottlaukur, 50 g

Steinselja, 10 g

Fiskikraftur, 0,5 msk / Oscar

Kjúklingakraftur, 0,5 msg / Oscar

Panko brauðraspur, ¾ dl

Rjómi, 250 ml


  1. Forhitið ofn í 180°C á blæstri. Þýðið rækjur og þerrið með eldhúspappír.

  2. Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita. Ristið panko raspinn þar til hann er fallega gylltur. Setjið raspinn í skál og þrífið pönnuna.

  3. Raðið beikoni á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í 12-14 mín eða þar til beikonið er fulleldað (fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við). Geymið.

  4. Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af salti og náið upp suðu.

  5. Hitið olíu á pönnu og steikið rækjurnar í um 2 mín á hvorri hlið eða þar til þær eru fulleldaðar. Pressið hvítlauksrif saman við rækjurnar þegar um 1 mín er eftir af eldunartímanum. Saltið smá og færið rækjurnar á disk til hliðar ásamt vökvanum úr pönnunni.

  6. Skerið skalottlauk smátt. Hitið smá olíu á pönnunni og steikið skalottlaukinn við miðlungshita þar til hann fer að mýkjast. Pressið 2 hvítlauksrif út á pönnuna og steikið í stutta stund.

  7. Sjóðið linguine eftir leiðbeiningum á pakka. Geymið smá pastavatn ef þar til þess að þynna sósuna.

  8. Bætið hvítvíni út á pönnuna og látið sjóða niður um helming. Bætið rjóma, fiskikrafti og kjúklingakrafti út á pönnuna og látið malla við miðlungshita á meðan pasta er soðið. Rífið helminginn af parmesan ostinum saman við. Smakkið til með salti og pipar.

  9. Bætið soðnu linguine út í sósuna á pönnunni ásamt rækjum og blandið vel saman þar til allt er vel hulið sósu. Bætið við smá pastavatni ef þarf.

  10. Saxið steinselju og beikon. Blandið saman við pastað á pönnunni. Toppið með ristuðum panko raspi eftir smekk og restinni af parmesan ostinum.

  11. Berið fram með góðu salati og brauði.



bottom of page