top of page

Ribeye steikur með trufflu kartöflumús og heimalöguðu kryddsmjöri

Góð steik og kryddsmjör klikkar aldrei. Hetjan í þessari uppskrift er þó trufflu kartöflumúsin sem tekur herlegheitin upp á næsta stig!


Einfalt, fljótlegt og sérstaklega ljúffengt "trít" fyrir þig og þína við næsta tilefni.

Fyrir 2:

Ribeye, 2x 250 g

Bökunarkartöflur forsoðnar, 2 stk sirka

Rjómaostur, 45 ml

Rjómi, 80 ml

Parmesanostur, 20 g

Truffluolía, 1-1,5 tsk / Elle Essen

Graslaukur, 4 g

Smjör, 60 ml / Við stofuhita

Hvítlauksrif, 2 lítil eða 1 stórt

Steinselja, 2 msk söxuð

Sítróna, 1 stk


  1. Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og sítrónuberki. Smakkið til með salti. Vefjið inn í matarfilmu eða smjörpappír og myndið lengju. Kælið.

  2. Takið kjötið úr kæli amk 1 klst fyrir eldun, en það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.

  3. Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Piprið eftir smekk.

  4. Skrælið bökunarkartöflurnar og setjið í lítinn pott með rjómaosti og rjóma. Stappið saman og hitið við miðlungshita þar til heitt í gegn. Rífið parmesanost saman við og blandið vandlega saman við ásamt truffluolíu (byrjið á helmning og smakkið ykkur svo til). Smakkið til með salti. Sneiðið graslauk rétt áður en maturinn er borinn fram og hrærið saman við kartöflumúsina.

  5. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið steikurnar í 3-4 mín á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur náð 55 °C kjarnhita fyrir medium rare. Þá er gott að notast við kjöthitamæli. Gott er að bæta smjörklípu út á pönnuna og dreypa bráðnu smjörinu yfir kjötið á meðan það steikist síðustu 2 mín. Leyfið kjötinu að hvíla í um 5 mín áður en það er borið fram.

  6. Berið fram með góðu salati.

Comentarios


bottom of page