top of page

Strangheiðarlegt og fljótlegt pylsupasta með kalamata ólífum, chiliflögum og basilíku

Við ólumst væntanleg öll upp við það að fá pylsupasta reglulega þegar við vorum börn og þótti það algjörlega toppurinn. Enda ekki skrítið að þetta hafi verið í vopnabúri foreldra okkar þar sem pylsupastað hittir alltaf í mark hjá börnum og tekur enga stund að verða klárt.


Þetta er mitt "go-to" pasta á virkum dögum þegar mig langar í eitthvað sérstaklega ljúffengt en hef ekki endilega orkuna í að standa í eldhúsinu lengur en 10-15 mín. Ég geri það þó örlítið "fullorðinslegra" með því að bæta við kalamata ólífum og rauðum chiliflögum (sem má auðvitað sleppa fyrir yngri munna).


Mæli með!

Fyrir 2-3: Pylsur frá SS, 5 stk

Ferskt spaghetti frá Rana, 1 pk

Rjómi, 150 ml

Barilla basilíku pastasósa, 250 ml

Kjúklingakraftur Oscar, 1 tsk

Kjötkraftur Oscar, 1 tsk

Kalamata ólífur, 40 g

Parmesanostur, 20 g

Basilíka fersk, 6 g

Rauðar chiliflögur, eftir smekk


  1. Setjið vatn í pott með ríflegu magni af salti og náið upp suðu.

  2. Sneiðið pylsur í þunnar sneiðar. Sneiðið ólífur og grófsaxið basilíku.

  3. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið pylsusneiðarnar þar til þær eru farnar að taka lit.

  4. Bætið pastasósu, rjóma, kjúklingakrafti, kjötkrafti og ólífum út á pönnuna. Rífið helminginn af parmesanostinum saman við og lækkið hitann svo það kraumi rólega í sósunni.

  5. Sjóðið pasta í 2-3 mín (eftir leiðbeiningum á umbúðum). Sigtið vatnið frá spaghettíinu og blandið spaghettíinu svo saman við sósuna ásamt basikíku og chiliflögum eftir smekk.

  6. Rífið restina af parmesanostinum saman við, smakkið til með salti og pipar og berið fram.

bottom of page