top of page

Piparsteik með silkimjúkri koníakssósu

Updated: Feb 12, 2021

Þegar maður vill gera extra vel við sig í kjöti þá velur maður nautalund. Oft er einfaldleikinn bestur og það er fátt betra en góð piparsteik og franskar kartöflur, ég tala nú ekki um þegar rjómalöguð koníakssósa er komin með í spilið!

Nautalund, 2x 200 g

Rjómi, 150 ml

Koníak, 40 ml

Skalottlaukur, 1 lítill (sirka 30 g)

Sýrður rjómi 10%, 1 msk

Dijon sinnep, 1 tsk

Kjötkraftur, 1/2 teningur

Sósulitur, ef vill

Sósujafnari, eftir smekk

 
  1. Takið kjötið út a.m.k. 1 klst áður en elda á matinn.

  2. Forhitið ofn í 200°C með yfir og undirhita.

  3. Þerrið kjötið með eldhúspappír. Nuddið með olíu og saltið og piprið kjötið rausnarlega.

  4. Hitið pönnu við háan hita (helst stálpönnu). Bætið 1 msk af hitaþolinni olíu út á pönnuna þegar það er aðeins farið að rjúka úr henni og steikið kjötið í um 3 mín á hvorri hlið. Bætið 15 g af smjöri út á pönnuna þegar um 1,5mín eru eftir af steikingartíma kjötsins og dreypið bráðnu smjörinu yfir steikina á milli þess sem henni er snúið nokkrum sinnum.

  5. Færið kjötið í eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 13-15 mín eða þar til kjarnhiti hefur náð 55°C fyrir medium rare eldun. Gott er að notast við kjöthitamæli til að fullvissa sig um að réttu kjarnhitastigi hafi verið náð.

  6. Hellið mestu olíunni úr pönnunni og stillið á miðlungshita. Bætið söxuðum skalottlauk út á pönnuna og steikið laukinn þar til hann er farinn að mýkjast. Bætið koníaki út á pönnuna og hækkið hitann.

  7. Látið vínið sjóða niður um a.m.k. helming og bætið þá rjóma, sýrðum rjóma, sinnepi, kjötkrafti og 1 dl af vatni út á pönnuna. Látið malla þar til sósan þykkist. Bætið að lokum smjörklípu út í sósuna ásamt sósulit ef vill og sósuþykki ef þarf. Smakkið til með salti.

  8. Berið steikurnar fram með frönskum kartöflum og góðu salati.


Comments


bottom of page