Piccante salami og jalapeno pizza með spæsí pizzasósu og hunangi
- Snorri
- Mar 11
- 2 min read
Einföld en svakalega bragðmikil pizza með kicki. Mæli afskaplega mikið með!

San marzano tómatar, 400 g
Hvítlaukur, 1 rif
Basilíka (stilkur og lauf), 5 g
Rautt chili, 10 g
Hunang, 30 ml
Pizzadeig, 220 g
Piccante salami (Tariello), 60 g
Grænt jalapeno, 1 stk
Mozzarella, 120 g
Chiliflögur, eftir smekk
Smásaxið chili. Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í stutt stund ásamt chili þar til hvítlaukurinn fer að ilma.
Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, basilíkunni og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann svo það malli rólega í pottinum. Látið malla í um 15 mín eða þar til sósan þykkist aðeins. Fjarlægið basilíkuna, maukið sósuna með töfrasprota og smakkið svo til með salti.
Takið pizzabotninn úr kæli amk 1 klst áður en elda á pizzuna.
Setjið pizzastein í neðstu grind í ofni og stillið á hæsta hita (300°C helst). Látið steininn hitna á meðan unnið er í öðru.
Dreifið svolitlu hveiti yfir borðið og notið hendurnar til þess að fletja pizzabotninn út í um 12“ hring og leggið svo á bökunarpappír. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 1,5 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
Sneiðið piccante salami þunnt ásamt grænu jalapeno. Dreifið sósu yfir pizzabotninn og því næst osti. Raðið salami og jalapeno á pizzuna og stráið chiliflögum svo yfir.
Færið pizzuna á pizzasteininn og bakið þar til pizzan er fallega gyllt og ljúffeng.
Toppið með hunangi og svörtum pipar þegar pizzan kemur úr ofninum.

ความคิดเห็น