top of page

Penne alla vodka

Penne alla vodka er ljúffengur pastaréttur sem varð vinsæll á 8 áratugnum í Bandaríkjunum og á Ítalíu. Mörgum þykir eflaust skrítið að setja vodka út í pastasósuna sína en sósan er soðin þar til allt áfengi (og með því áfengisbragð) er gufað upp. Eftir situr ljúffeng silkimjúk rjómalöguð tómatsósa sem verður betri með hverjum bita.


Toppið með steiktum beikon eða pancetta bitum, saxaðri steinselju og parmesan og njótið!

Fyrir 2:

Penne pasta, 250 g / td De Cecco

Pancetta eða beikon, 100 g

Vodka, 60 ml

San Marzano tómatar, 1 400 g dós / (Mega vera venjulegir)

Tómatpúrra, 3 msk

Chiliflögur, 1 ml

Laukur, 1 stk

Hvítlaukur, 4 rif

Rjómi, 120 ml

Smjör, 50 g

Steinselja, 10 g

Parmesan, 50 g

Lítið baguette brauð, 1 stk


  1. Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af salti og náið upp suðu.

  2. Setjið San Marzano tómata í blandara eða maukið innihald dósarinnar með töfrasprota.

  3. Saxið lauk smátt. Pressið 3 hvítlauksrif. Skerið pancetta eða beikon í bita.

  4. Steikið pancetta/beikon við miðlungshita þar til kjötið er stökkt og fallegt. Setjið á disk til hliðar og geymið.

  5. Steikið lauk við miðlungshita þar til hann er glær og mjúkur (varist að brúna laukinn). Bætið pressuðum hvítlauk út á pönnuna ásamt chiliflögum og steikið þar til hvítlaukurinn fer að ilma. Bætið tómatpúrru út á pönnuna og steikið í nokkrar mín þar til tómatpúrran þykkist og dökknar aðeins.

  6. Bætið maukuðum tómötum út á pönnuna ásamt helmingnum af pancetta/beikoni og svolitlu salti og látið malla í 10 mín þar til sósan þykknar aðeins.

  7. Bætið rjóma út pönnuna, rífið ¾ af parmesanostinum saman við og látið malla í 5 mín.

  8. Bætið penne pasta út í pottinn með sjóðandi vatninu og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Geymið 1 dl af pastavatninu áður en vatnið er sigtað frá pastanu.

  9. Bætið vodka út á pönnuna með sósunni ásamt 25 g af smjöri og látið malla á meðan pasta sýður (amk 10 mín svo áfengið sjóði úr sósunni).

  10. Bætið penne pasta út í pottinn með sósunni og blandið vel saman. Bætið við pastavatni eftir þörfum og látið malla í smástund þar til sósan hefur náð hæfilegri þykkt. Smakkið til með salti.

  11. Saxið steinselju og hrærið saman við réttinn. Toppið með restinni af pancetta/beikoni og parmesanosti.

  12. Bræðið 25 g smjör og pressið 1 hvítlauksrif saman við. Skerið baguette í tvennt og skerið helmingana svo í tvennt þversum. Smyrjið brauðin rausnarlega með hvítlaukssmjöri og rífið parmesan ost yfir. Bakið í miðjum ofni stilltum á 200C grill í nokkrar mín þar til osturinn er bráðinn og brauðið er búið að taka fallegan lit.

bottom of page