top of page

Papriku og chili tagliatelle með burrata

  • Writer: Snorri
    Snorri
  • Apr 16
  • 1 min read

Þegar þú ert í stuði fyrir pasta sem er örlítið meira „vá“ en spaghettí með sósu úr krukku? Þá er þetta pastað sem þú vilt. Rauð paprika, balsamedik og chili gefa sósunni dýpt og smá hita á meðan tagliatelle'ið bindur allt saman. Og svo setjum við burrata ofan á – af því burrata gerir allt betra! Þetta er réttur sem lítur vel út, bragðast ótrúlega vel og tekur ekki endalausan tíma. Með klettasalati og parmesan til hliðar ertu basically komin(n) á litla ítalska trattoríu. Nema bara heima.




Fyrir 2:

2 msk ólífuolía

2 hvítlauksgeirar, rifnir eða saxaðir

1 lítil rauð paprika, skorin í litla bita

1 lítið rautt chili (eða ½ ef þú vilt mildara), fínsaxað

400 g San marzano tómatar

1 tsk provance kryddblanda

1 tsk sykur

Salt og pipar eftir smekk

1 tsk balsamikedik (valfrjálst, gefur dýpt)

250 g ferskt tagliatelle

1 burrata ostur

1 lúka klettasalat

Rifinn parmesan eftir smekk

Ólífuolía og nýmalaður pipar til að toppa


  1. Hitaðu olíuna í potti á meðalhita. Bættu við hvítlauk, papriku og chili og steiktu þar til allt er mjúkt og ilmar (5–7 mín).

  2. Maukaðu tómatana eðu kremdu þá í litla bita með höndunum.

  3. Bættu við tómötum, sykri, balsamikedik, provance kryddblöndu, salti og pipar. Láttu malla í nokkrar mín þar til sósan þykkist svolítið. Hrærðu af og til.– Ef þú vilt sléttari áferð, geturðu maukað sósuna með töfrasprota. Smakkaðu til með salti.

  4. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Geymdu smá pastavatn til að þynna sósuna ef þarf. Blandaðu pastanu saman við sósuna og hrærðu vel.

  5. Settu pastað á diska, rífðu burrata ostinn yfir, toppaðu með klettasalati, parmesan og smá ólífuolíu + nýmöluðum pipar.



コメント


bottom of page