Lúxus nauta grillspjót með chimichurri
- Snorri 
- Nov 5, 2021
- 1 min read
Það er fátt betra en grillspjót með góðu meðlæti og þessi tilteknu spjót tróna á toppnum hjá mér. Ég nota í þau nautalund svo hver einasti biti sé meir og góður og marinera svo upp úr einfaldri rósmarín & hvítlauks marineringu í a.m.k. 30 mín en helst í um 4 tíma.
Með þessu geri ég chimichurri en eins og matgæðingar vita þá getur chimichurri ekki klikkað með grilluðu kjöti.

Fyrir 3-4:
Nautalund, 800 g / Skorin í 4 cm bita
Grillpinnar, 6 stk
Rauðlaukur, 1 stk
Rauð paprika, 1 stk
Rósmarín, 2 stilkar
Hvítlaukur, 5 rif / 18 g
Ólífuolía, 120 ml
Breiðblaða steinselja, 30 g
Kóríander, 10 g
Þurrkað oregano, ¾ tsk
Chiliflögur, ½ tsk eða eftir smekk
Sítróna, 1 stk
- Leggið grillspjótin í bleyti 60 mín áður en á að elda svo viðurinn brenni síður. 
- Tínið rósmarínlaufin af stilknum og saxið smátt. Við viljum vera með sirka 2 msk af söxuðu rósmarín. 
- Setjið kjötið í skál ásamt skvettu af olíu, söxuðu rósmarín, 3 pressuðum hvítlauksrifum (12 g) og 1 msk af flögusalti. Blandið vel saman og látið marinerast í a.m.k. 30 mín 
- Saxið steinselju og kóríander mjög smátt. Setjið í skál ásamt 120 ml ólífuolíu, chiliflögum, oregano, 1,5 pressuðu hvítlauksrifi (6 g) og 1 tsk af flögusalti. Kreistið um 1 msk af sítrónusafa saman við og smakkið svo til með meiri hvítlauk, salti og sítrónusafa ef þarf. Gott er að láta sósuna standa í a.m.k hálftíma. 
- Hitið grill upp í 200°C. 
- Skerið lauk og papriku í bita svipaða að stærð og kjötið. Þræðið kjötið, lauk og papriku til skiptis á grillspjótin og grillið í um 10 mín en snúið á 2,5 mín fresti. 
- Berið spjótin fram með t.d. grilluðum maís og sætum kartöflum. 






Comments