top of page

Morgunverðarpizza með eggjum, skinku og lauk

Innblásturinn að þessari morgunverðarpizzu kemur frá grilluðu ostasamlokunum sem pabbi gerði fyrir stundum okkur bræðurna þegar við vorum litlir. Þá grillaði hann brauð með osti og skinku í ofni með helling af season all og toppaði svo með spældu eggi. Þetta þótti mér algjör veisla!


Þessi pizza tékkar í öll réttu boxin og er akkúrat það sem maður vill á kósí laugardagsmorgni. Botninn er smurður með hvítlaukssmjöri, toppaður með osti, skinku, lauk og svo grillkryddi frá Santa Maria, sem er ansi góður staðgengill fyrir gamla góða Season All.


Þessi uppskrift að pizzadeigi er svakalega einföld og skilar manni æðislegum pizzabotni, en hún krefst smá þolinmæði þar sem deigið þarf að taka sig í 2 daga áður en pizzurnar eru bakaðar og því gott að plana aðeins fram í tímann. Þú munt samt ekki sjá eftir því! En það er auðvitað líka í fínu lagi að nota tilbúið pizzadeig ef tíminn er af skornum skammti.


Þessi uppskrift gerir ráð fyrir því að þú eigir pizzastein. Ef þú átt ekki pizzastein en gerir oft pizzur heima þá mæli ég sterklega með því að þú fjárfestir í einum slíkum ásamt pizzaspaða.

Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með

Sykur, 10 g

Borðsalt, 7 g

Þurrger, 7 g

Ólífuolía, 6 msk

Vatn, 280 g

Smjör, 20 g

Hvítlaukur, 1 rif

Mozzarella rifinn, 150 g

Parmesan eða Pecorino, Smá bútur

Silkiskorin skinka, 40 g / Ali

Egg, 2-3 stk

Laukur, 1/4 lítill

Grillkrydd, eftir smekk / Santa Maria

Breiðblaða steinselja, 4 g

 
  1. Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni þar til það er svipað heitt og notalegt bað.

  2. Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og 2 msk af ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.

  3. Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund, skiptið því svo í tvennt og og myndið úr því 2 kúlur. Spreyið eða smyrjið 2 skálar með olíu og færið deigið í skálarnar. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.

  4. Takið 1 kúlu úr kæli 2 klst áður en baka á pizzuna. Hina kúluna má nota innan 2 daga.

  5. Leggið grind í botninn á ofni og pizzastein þar ofan á. Stillið ofninn á 250 °C með yfir og undirhita og látið steininn hitna upp með ofninum.

  6. Bræðið smjör með 1 pressuðu hvítlauksrifi. Skerið lauk í strimla.

  7. Hafið bökunarpappír tilbúinn til þess að leggja deigið á.

  8. Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 30 cm hring á borðinu. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur. Færið botninn yfir á bökunarpappír

  9. Smyrjið botninn með hvítlaukssmjöri, rífið parmesan/pecorino yfir og dreifið svo mozzarellaosti yfir. Rífið skinkuna og raðið yfir ostinn og stráið lauk yfir. Kryddið rausnarlega með grillkryddi.

  10. Það er hægt að setja eggin á pizzuna á tvo vegu: Ef eggin er sett í heilu lagi með rauðunni á pizzuna og hún svo bökuð verður miðjan svipuð því og í linsoðnu eggi, sem er ljúffengt. Annars má aðskilja rauðuna og hvítuna og setja einungis hvítuna á pizzuna, þegar eldunartími pizzunar er hálfnaður er rauðan svo sett ofan á hálfeldaða hvítuna og eldunartíminn kláraður. Þannig helst rauðan meira fljótandi.

  11. Notið pizzaspaða til þess að færa pizzuna á bökunarpappírnum á heitan pizzasteininn. Bakið í 6-7 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt og osturinn bubblandi. Þegar tíminn er hálfnaður er gott að fjarlægja bökunarpappírinn (og bæta eggjarauðunum við ef sú aðferð varð fyrir valinu.).

  12. Saxið steinselju og dreifið yfir pizzuna áður en maturinn er borinn fram.

bottom of page