top of page

Mið-Austurlensk kjúklingalæri með bulgur salati og hvítlaukssósu

Updated: Jan 9, 2020

Við höfum öll gott af því að borða aðeins léttari mat eftir hátíðarnar (eða hvenær sem er bara!) og þá er kjörið að líta til Mið-Austurlanda, en þar eru matarhefðirnar virkilega mér að skapi. Bragðmikill og hollur matur sem er sömuleiðis afskaplega litríkur og fallegur.


Ég elda afskaplega oft rétti í líkindum við þennan fyrir okkur fjölskylduna og vel þá helst skinn og beinlaus kjúklingalæri, en mér þykja þau bragðbest ásamt því að þau þola betur að vera bökuð aðeins lengur en td kjúklingabringur þar sem þau eru fitumeiri og verða síður þurr áður en þau eru orðin fallega brúnuð.

Fyrir 2:

Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 500 g

Shawarma krydd, 10 g / Kryddhúsið

Bulgur, 120 ml

Kóríander, 10 g

Steinselja, 15 g

Lítill rauðlaukur, ¼ stk

Pistasíuhnetur, 25 g

Granateplafræ, 30 g

Fetaostur í kryddlegi, 30 g

Grísk jógúrt, 60 g

Majónes, 60 g

Sykur, 1 tsk

Borðedik, 1 msk

Sítrónusafi, 0,5 tsk

Hvítlaukur, 2 g

Salt & pipar

 
  1. Setjið kjúklingalæri í skál ásamt shawarma kryddi og um 1.5 tsk af flögusalti. Blandið vel saman og látið marinerast í amk 1 klst.

  2. Stillið ofn á 180 °C með blæstri. Dreifið kjúklingalærunum yfir ofnpötu með bökunarpappír og bakið í 30 mín í miðjum ofni.

  3. Hrærið saman grískri jógúrt, majónesi, sítrónusafa, sykur og ediki. Saxið 5 g af steinselju og pressið hvítlauk og hrærið saman við sósuna. Smakkið til með salti og ríflegu magni af svörtum pipar.

  4. Sjóðið bulgur eftir leiðbeiningum á pakka og færið svo í skál.

  5. Saxið kóríander, restina af steinselju, pistasíuhnetur og rauðlauk. Hrærið saman við bulgur ásamt granateplafræjum og fetaosti. Smakkið til með salti.

  6. Berið fram með naan brauði og fersku salati.

bottom of page