top of page

Mexíkóskar tacos með avocado salsa, suðrænni sósu og radísum

Ég geri rosalega oft tacos í matinn fyrir okkur fjölskylduna enda frábær leið til að framreiða bragðmikinn og skemmtilegan mat á stuttum tíma.

Þessi uppskrift slær ekki slöku við og er tilbúin á innan við 20 mín frá byrjun til enda og svo er hún ótrúlega ljúffeng í þokkabót. Við erum ekki að hata það!


Fyrir 2:

Mexíkópylsur (sterkar), 300 g / Frá Ali

Litlar tortillur, 8 stk / t.d. white corn tortilla frá Old El Paso

Avocado, 1 stk

Rauðlaukur, 1/4 lítill

Hvítlaukur, 1 rif

Kóríander, 6 g

Smátómatar, 125 g

Límóna, 1 stk

Radísur, 2 stk

Íssalat eða Romaine, 50 g

Japanskt majónes, 50 ml

Sýrður rjómi, 50 ml

Salsa sósa, 30 ml

Hvítlauksduft, 0,5 tsk

Hot sauce eftir smekk / t.d. Cholula green pepper

 
  1. Stillið ofn á 150°C með yfir og undir hita.

  2. Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma, salsa sósu og hvítlauksduft. Smakkið til með salti og geymið svo í kæli.

  3. Setjið Mexíkópylsur í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrynum þar til áferðin á pylsunum er svipuð og hakki.

  4. Skerið tómata og avocado í bita, saxið rauðlauk eftir smekk, pressið hvítlauksrif og saxið kóríander. Setjið allt saman í skál ásamt smá skvettu af ólífuolíu og rífið límónubörk saman við. Smakkið til með salti.

  5. Sneiðið salat í þunnar ræmur og setjið í skál. Sneiðið radísur mjög þunnt og setjið í skál með smá köldu vatni.

  6. Vefjið tortilla vefjum inn í álpappír og hitið í ofni þar til vefjurnar eru mjúkar og heitar.

  7. Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið hökkuðu pylsunar í nokkrar mín þar til kjötið er farið að brúnast fallega.

  8. Raðið sósu, salati, kjöti og avocado salsa í tortilla vefjurnar. Toppið með radísum og ykkar uppáhalds hot sauce.




bottom of page