top of page

Mexíkó beikonborgarar með jalapeno og salsasósu

Hér eru sumarborgararnir mættir! Það eru einhverjir töfrar sem gerast þegar majó, beikon, jalapeno, cheddar og taco krydd koma saman í dúnmjúku kartöflubrauðinu og maður fær bara ekki nóg.

Mæli klárlega með þessum í grillveisluna í sumar!

Fyrir 4:

Smassborgarar, 4x 120 g

Taco krydd, 1,5 msk / Ég notaði El Paradiso

Kartöflu hamborgarabrauð, 4 stk

Amerískur cheddar ostur, 4 sneiðar

Beikon, 8 sneiðar

Tómatur, 2 stk

Rauðlaukur, 1 stk

Salatblanda, 40 g

Heinz Seriously good mayo, eftir smekk

Heinz mayo mix, eftir smekk

Mission salsasósa, 120 ml

Jalapeno eftir smekk

Kóríander eftir smekk. Franskar


  1. Forhitið ofn í 180°C með blæstri.

  2. Raðið beikoni á ofnplötu og bakið í miðjum ofni í 12-14 mín. Fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við.

  3. Sneiðið tómata og rauðlauk. Rífið salatblöndu eftir smekk.

  4. Ristið hamborgarabrauðin á heitri pönnu eða í efri grind á grilli.

  5. Kryddið borgarana rausnarlega með taco kryddi á báðum hliðum. Steikið eða grillið borgarana í 2,5 mín á hvorri hlið. Setjið ost á kjötið þegar því er snúið.

  6. Smyrjið brauðin með majónesi og raðið svo salatblöndu, kjöti, salsasósu, jalapeno, lauk, tómötum og beikoni í brauðin. Saxið kóríander og stráið yfir borgarana áður en þeim er lokað.

  7. Berið fram með frönskum og Heinz mayomix sósu.

Þessi færsla er unnin í samstarfi með Innnes ehf.

bottom of page