top of page

Íslensk bláskel í hvítvínssoði með ferskum kryddjurtum

Íslensk bláskel er algjört lostæti en í þessari uppskrift er hún elduð í hvítvínssoði með skalottlauk, hvítlauk og smá chiliflögum ásamt vænni klípu af smjöri og helling af ferskum kryddjurtum. Algjör veisla með góðu súrdeigsbrauði með smjöri til þess að dífa í soðið.

Munið bara að skrúbba skeljarnar undir köldu vatni og skegghreinsa/þráðskera skeljarnar ef þarf. Sömuleiðis skal henda þeim skeljum sem eru þegar opnar og loka sér ekki sjálfar aftur fyrir eldun ásamt þeim sem ekki opnast við eldun.

Forréttur fyrir 4:

Íslensk bláskel, 1 kg / Fæst í Melabúðinni

Hvítvín, 250 ml

Smjör, 40 g

Skalottlaukur, 50 g

Hvítlaukur, 3 rif

Basilíka, 15 g

Steinselja, 10 g

Chiliflögur, 1 ml

Gott súrdeigsbrauð

 
  1. Þráðskerið og skrúbbið skeljarnar undir köldu vatni ef þarf. Hendið þeim skeljum sem eru þegar opnar og loka sér ekki aftur sjálfar.

  2. Smásaxið skalottlauk ásamt basil og steinselju.

  3. Hitið smá olíu í djúpum potti og steikið skalottlaukinn ásamt chiliflögum þar til laukurinn fer að mýkjast en varist að hafa hitann svo háan að laukurinn brúnist. Pressið hvítlauk saman við og steikið áfram í stutta stund þar til hvítlaukurinn fer að ilma. Saltið örlítið en hafið í huga að bláskelin er þegar svolítið sölt.

  4. Bætið hvítvíni út í og hækkið hitann í hæstu stillingu. Setjið bláskelina út í pottinn og látið krauma vel undir loki í um 4-6 mín. Hristið aðeins í pottinum við og við. Hendið þeim skeljum sem opnast ekki við suðuna.

  5. Hrærið smjöri og kryddjurtum saman við skeljarnar og hvítvínssoðið og berið fram með góðu súrdeigsbrauði og smjöri.

Comments


bottom of page