top of page

Indverskt karrí með grillosti og ristuðum möndlum

Ómótstæðilegt indverskt karrí með steiktum grillosti í bragðmikilli indverskri sósu, toppað með ristuðum möndlum og helling af kóríander. Algjört veislu ferðalag fyrir bragðlaukana!

Fyrir 2:

Grillostur, 260 g

Basmati hrísgrjón, 120 ml

Möndlur, 20 g

Engifer, 6 g

Hvítlaukur, 2 rif

Laukur, 100 g

Kasjúhnetur, 40 g

Tómatpúrra, 2 tsk

Baharat Líbanon, 2 msk / Kryddhúsið

Kjúklingakraftur, 1 msk / Má nota grænmetiskraft

Niðursoðnir tómatar, 200 g / 1/2 dós

Sykur, 1 tsk

Rjómi, 60 ml

Smjör, 30 g

Kóríander, eftir smekk

Naan brauð

 
  1. Setjið 180 ml af vatni í pott ásamt smá salti og náið upp suðu. Bætið hrísgrjónum út í pottinn, lækkið hitann svo það rétt kraumi í pottinum og látið malla undir loki í um 13 mín. Takið af hitanum og látið standa undir loki í 10 mín.

  2. Ristið möndlur á heitri pönnu í stutta stund. Saxið möndlur gróflega.

  3. Rífið engifer með rifjárni. Pressið hvítlauk.

  4. Sneiðið lauk í þunnar sneiðar. Hitið smá olíu í potti við miðlungshita. Bætið lauk og 10 g af smjöri út í pottinn. Steikið laukinn þar til hann fer að mýkjast og bætið þá kasjúhnetum, tómatpúrru, rifnum engifer, pressuðum hvítlauk, Baharat Líbanon kryddblöndu og kjúklingakrafti út í pottinn. Steikið áfram í um 2 mín og bætið þá niðursoðnum tómötum, 150 ml vatni, 1 tsk flögusalti og 1 tsk sykur út í pottinn og látið malla undir loki í um 10 mín eða þar til kasjúhneturnar eru búnar að mýkjast. Hrærið í við og við svo ekkert festist við botninn á pottinum.

  5. Bætið rjómanum og 20 g af smjöri út í pottinn. Maukið blönduna með töfrasprota þar til blandan er orðin silkimjúk og hæfilega þykk sósa hefur myndast (bætið við ögn af vatni ef þarf). Smakkið til með salti. 

  6. Skerið grillost í kubba. Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið grillostinn þar til hann er fallega gylltur á öllum hliðum. Bætið ostinum því næst út í sósuna í pottinum og látið malla í stutta stund.

  7. Skiptið hrísgrjónum og karrí á milli diska og toppið með söxuðum kóríander og ristuðum möndlum.

  8. Berið fram með heitu naan brauði.


bottom of page