top of page

Hægeldaður lamba pottréttur

Updated: Jul 24, 2019

Lungamjúkt hægeldað lambakjöt í bragðmikilli sósu úr San Marzano tómötum, rósmarín og hvítvíni sem yljar manni um hjartaræturnar og fyllir heimilið af ómótstæðilegri lykt.


Fullkomin máltíð á þessum dögum þegar maður vill bara halda sig heima, hafa það náðugt í rólegheitum og taka sér smá tíma í að útbúa kvöldmatinn!


Fyrir 4-6:

Lamba prime, 1 kg

Gulrætur, 200 g

Rauðlaukur stór, 1 stk

Sellerístilkar, 2 stk

Perlulaukur, 12 stk

Tómatpúrra, 30 ml

Herbs de Provence, 20 ml / Pottagaldrar

Lambakraftur, 20 ml / Oscar

Rósmarín ferskt, 1 grein

Lárviðarlauf, 2 stk

Hvítvín, 1 dl

Hunang, 10 ml

San Marzano tómatar, 2 dósir

Hvítlauksrif, 10 stk

Steinselja, 8 g

Hveiti, nóg til að hylja kjötið

 
  1. Skrælið og skerið rauðlauk í fernt, skrælið perlulaukana, hvítlauksrifin og skerið sellerí og gulrætur í grófa bita.

  2. Skerið lambið í um 3 cm bita og veltið upp úr hveiti. Hitið olíu í djúpum potti (Helst steypujárnspotti) og brúnið kjötið vel, en þetta er best að gera í nokkrum skömmtum svo kjötið brúnist sem best. Færið á disk til hliðar.

  3. Steikið grænmetið í nokkrar mín í pottinum og bætið þá tómatpúrru út í og steikið í nokkrar mín til viðbótar. Bætið hvítvíni út í og látið sjóða niður í smástund.

  4. Bætið tómötum, lambakrafti, kjöti, herbs de provance, rósmarín, lárviðarlaufum og hunangi út í pottinn og náið upp suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í pottinum og látið svo malla undir loki í um 2.5-3 klst eða þar til kjötið er orðið svo mjúkt að það losnar auðveldlega í sundur. Fleytið fituna ofan af réttinum og smakkið til með salti og pipar.

  5. Saxið steinselju og hrærið saman við réttinn rétt áður en maturinn er borinn fram.

  6. Berið fram með td hvítlauks- kartöflumús eða bökuðu smælki.


bottom of page