Spæsí hunangs-límónu rauðkáls hrásalat
- Snorri
- Apr 16
- 1 min read
Þetta er nýja uppáhalds meðlætið mitt! Passar virkilega vel í t.d. tacos eða sem meðlæti í skálar. Sætt, smá súrt og spæsí.
Það er lykilatriði að skera rauðkálið mjög þunnt, helst með mandolíni, svo það sé sem skemmtilegast að borða salatið.
Svo má leika sér með innihaldið líka. Það er t.d. mjög gott að bæta við pistasíuhnetum ef maður vill aðeins meira kröns. Mæli með!

Rauðkál, 250 g
Hunang, 20 g
Límónusafi, 20 g
Kóríander, 6 g
Radísur, 3 stk
Rautt chili, 30 g (eða eftir smekk)
Sneiðið rauðkálið og radísur mjög þunnt, helst með mandolíni.
Saxið kóríander og sneiðið chili þunnt.
Pískið saman hunang og límónusafa.
Blandið öllu saman og látið standa í nokkrar mín. Smakkið til með meira hunangi og límónusafa ef þarf.
Comments