top of page

Confit chili

  • Writer: Snorri
    Snorri
  • Apr 24
  • 1 min read

Confit chili er eitt af þessum hráefnum sem maður áttar sig ekki á hvað er næs að eiga klárt inni í ísskáp fyrr en maður prófar það. Fullkomin leið til að nýta restina af chili'unum þegar maður þurfti bara einn en keypti nokkra og bætir instant hita og bragði í fjöldan allan af réttum.


Sáraeinfalt í framkvæmd og algjör snilld. Ég nota þetta sérstaklega mikið á pizzur og t.d. líka í stir fry og pastarétti.

8–10 rauðir chili

4–5 hvítlauksrif (valfrjálst – en mæli með!)

2 dl ólífuolía (eða blanda af ólífu- og repjuolíu)

1–2 tsk salt


Valfrjálst:

1 tsk sykur (ef þú vilt mýkja hitann)

1 tsk edik (t.d. epla eða hvítvínsedik) í lokin ef þú vilt smá sýru.


  1. Skerðu chili í þunnar sneiðar. Fjarlægðu fræin ef þú vilt minna hita.

  2. Settu chili, hvítlauk og olíu í lítinn pott eða pönnu.

  3. Láttu malla við mjög lágan hita (u.þ.b. 90–100°C) í 30–45 mínútur, eða þar til chilið er orðið mjúkt.

  4. Kryddaðu með salti og sykri eftir smekk.

  5. Leyfðu að kólna og helltu í krukku. Geymist í ísskáp í 2–3 vikur.

  6. Bættu 1 tsk ediki við þegar blandan er köld ef þú vilt örlitla sýru.

Σχόλια


bottom of page