top of page

Humarpizza með beikoni og mayomix topping

Gómsæt humarpizza með beikoni og Heinz Mayomix topping. Pizzabotninn er pennslaður með helling af hvítlauksolíu og með Mayomixinu þarf ekki venjulega pizzasósu. Virkilega gómsæt, öðruvísi og spennandi pizza fyrir næsta pizzakvöld. Mæli með!

Pizzadeig, 400 g

Humar (skelflettur og hreinsaður), 250 g

Hvítlaukur, 3 rif

Beikon, 70 g

Heinz Mayomix, 60 ml eða eftir smekk

Mozzarella rifinn, 150 g

Rauðlaukur, ¼ lítill

Steinselja, 4 g

Vorlaukur, 1 stk

Filippo Berio ólífuolía, 40 ml


  1. Takið pizzadeigið úr kæli 2 klst fyrir eldun.

  2. Hitið ofn í 200°C með blæstri. Raðið beikoni á ofnplötu og bakið í miðjum ofni í 12-15 mín eða þar til beikonið er fulleldað. Fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við. Skerið beikon svo í bita og stillið ofninn á 230°C á pizzastillingu eða blæstri.

  3. Þerrið humar og steikið á heitri pönnu þar til fulleldaður. Bætið við 1,5 pressuðu hvítlauksrifi og steikið í stutta stund. Saltið smá og setjið til hliðar.

  4. Pressið 1,5 hvítlauksrif saman við 40 ml af góðri ólífuolíu.

  5. Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Ef pizzasteinn er til á heimilinu er kjörið að nota hann í stað bökunarplötunnar. Hafið bökunarpappír kláran til að vinna deigið á.

  6. Setjið hveiti á hendurnar og borðið og notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 15" hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.

  7. Smyrjið pizzabotninn með hvítlauksolíu og saltið smá. Dreifið mozzarellaosti yfir pizzuna. Raðið humar, rauðlauk og beikoni á pizzuna.

  8. Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pizzzuna á ofnpappírnum á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt og ljúffeng.

  9. Sneiðið vorlauk og steinselju. Toppið pizzuna með Heinz Mayomix, vorlauk, steinselju og svolitlu salti. Athugið að það má salta pizzuna hæfilega þar sem það er engin pizzasósa.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum Daginn Girnilegan

bottom of page