top of page

Himneskt humar pasta með ristuðum pankó raspi

Updated: Jul 22, 2020

Hér er á ferðinni einn sá allra besti pastaréttur sem hefur komið úr eldhúsinu hjá mér og þeir hafa sko verið ansi margir yfir tíðina!


Hvítlaukssteiktur humar í mildri rjóma og hvítvínslagaðri pastasósu með ristuðum pankó raspi og helling af parmesan. Þetta verður ekki mikið betra en þetta!


Ég nota spaghetti frá Tariello í þennan rétt en það er örlítið þykkara en annað pasta á markaðnum sem gefur því aðeins meira bit sem mér þykir koma virkilega vel út, auk þess að vera sérlega ljúffengt.

Fyrir 3-4:

Humar, 450 g

Spaghetti, 300 g / Tariello, fæst í Melabúðinni

Laukur, 100 g

Hvítlaukur, 3 rif

Sítróna, 1 stk

San Marzano tómatar, 400 g / Fást í Melabúðinni

Tómatpúrra, 30 ml

Ítalskt sjávarréttakrydd, 1 msk / Pottagaldrar

Hvítvín, 1 dl

Rjómi, 0,5 dl

Pankó brauðraspur, 1 dl

Fiskiteningur, 1/2 stk / Knorr

Tómat & jurtateningur, 1/2 stk / Kallo

Parmesan, 30 g

Steinselja, 20 g

 
  1. Afþýðið og þerrið humar. Hreinsið skítröndina frá ef þarf.

  2. Setjið ríflegt magn af vatni í pott með smá salti og náið upp suðu.

  3. Ristið pankó brauðrasp á heitri pönnu með smá olíu þar til raspurinn er farinn að taka gylltan lit. Pressið hvítlauksrif saman við og ristið áfram í stutta stund þar til allur raspurinn er fallega gyllltur en hrærið vel í á meðan svo ekkert brenni. Smakkið til með salti.

  4. Saxið lauk nokkuð smátt.

  5. Steikið humarinn upp úr smjöri og 1 pressuðu hvítlauksrifi í um 2-3 mín eða þar til hann er rétt svo eldaður í gegn. Færið humarinn á disk og hyljið með álpappír.

  6. Hitið smá olíu í steypujárnspotti eða stórri pönnu og steikið saxaðan lauk við miðlungshita þar til hann er glær og mjúkur. Pressið hvítlauksrif í pottinn og steikið áfram í 1 mín.

  7. Bætið tómatpúrru út í pottinn og steikið í nokkrar mín.

  8. Hækkið hitann á pottinum og bætið hvítvíni út í. Látið vínið sjóða niður um helming.

  9. Kremjið tómatana á milli fingra og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni. Bætið rjóma, ítölsku sjávarréttakryddi, 1/2 fiskitening og 1/2 tómat & jurtatening út í pottinn. Látið sósuna malla undir loki á meðan spaghetti er soðið.

  10. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakka.

  11. Saxið steinselju smátt og rífið helminginn af parmesan ostinum saman við sósuna og bætið við smjörklípu. Smakkið til með salti ef þarf.

  12. Sigtið vatnið frá spaghettíinu og bætið út í pottinn og veltið upp úr sósunni.

  13. Blandið humrinum ásamt vökvanum af disknum og steinselju saman við spaghettíið og sósuna í pottinum og rífið restina af parmesan ostinum yfir.

  14. Rífið sítrónubörk yfir réttinn (varist að taka hvíta undirlagið með) og berið fram með ristuðum pankó og góðu brauði.

Коментари


bottom of page