top of page

Heitt súkkulaði með Stroh og karamellusósu

Heitt súkkulaði með Stroh er fyrir löngu orðið klassík. Hér er þessi frábæri vetrardrykkur tekinn upp á næsta stig með karamellusósu sem blandast fullkomlega saman við rjómann og heita súkkulaðið.

Fyrir 3-4:

Stroh 60, 60-100 ml

Mjólk, 500 ml

Vanilludropar, 0,5 tsk

Kanilstöng, 1 stk

Súkkulaði 56%, 150 g

Kakóduft, 1 msk

Hlynsíróp, 2 msk

Karamellusósa, 60 ml / Ég notaði Smuckers

Rjómi, 150 ml


  1. Setjið mjólk, vanilludropa og kanilstöng í pott og stillið á miðlungshita. Hitið mjólkina

  2. þar til hún nálgast það að fara að sjóða.

  3. Saxið súkkulaðið (geymið smá til skrauts). Lækkið hitann ögn og bætið súkkulaði út í

  4. pottinn ásamt kakóduft og hlynsírópi. Hrærið í þar til allt hefur samlagast.

  5. Takið af hitanum, fjarlægið kanilstöngina og hrærið Stroh saman við. Smakkið til með

  6. meira Stroh ef vill.

  7. Léttþeytið rjómann. Skiptið heitu kakói á milli glasa, toppið með þeytum rjóma,

  8. karamellusósu og rífið súkkulaði yfir.

bottom of page