Graskerskleinuhringir
- Snorri 
- Oct 13, 2020
- 1 min read
Updated: Dec 5, 2022
Nú þegar haustið er í fullu gangi þá er ekkert betra en ilmandi kryddaðir graskerskleinuhringir hjúpaðir kanilsykri.
Undirstaðan í þessari uppskrift er hreint graskersmauk frá Libby´s en með haustinu ratar það í búðirnar og þegar þessi færsla er skrifuð fæst það í Costco, en annars er Melabúðin, Hagkaup eða Fjarðarkaup vænlegast til vinnings.
Í stað þess að djúpsteikja þessa kleinuhringi þá eru þeir bakaðir í ofni í sérstöku kleinuhringjaformi sem fæst í Allt í köku en ég hef líka séð það til í Hagkaup.
Þessi uppskrift gerir 22-24 kleinuhringi.

Grænmetisolía, 100 g
Egg, 3 stk
Sykur, 250 g
Hlynsýróp, 3 msk
Graskersmauk, 340 g
Kanill, 1 tsk
Engiferduft, 1/4 tsk
Múskat, 1/4 tsk
Salt, 1,5 tsk
Lyftiduft, 1,5 tsk
Hveiti, 230 g
- Forhitið ofn í 170°C með yfir og undirhita. 
- Hrærið saman öll hráefnin fyrir utan hveiti með handþeytara þar til allt hefur samlagast. 
- Hrærið hveitinu saman þar til það hefur samlagast blautblöndunni. Varist að ofhræra blönduna með hveitinu. 
- Smyrjið kleinuhringaformin með olíu svo kleinurhingirnir losni auðveldar úr formunum. 
- Fyllið mótin sirka 3/4 leið upp af deigi og bakið í miðjum ofni í 15 mín eða þar til tannstöngull kemur hreinn úr miðju kleinuhringjanna. Látið kólna í nokkrar mín og losið þá úr formunum. 
- Veltið upp úr kanilsykri og berið fram strax eða hyljið með hreinu eldhússtykki þar til skömmu áður en bera á fram og veltið þá upp úr kanilsykri. 






Comments