top of page

Brennd basknesk ostakaka

Þegar kemur að heimi eftirréttanna hefur einni tiltekinni köku tekist að fanga hjörtu og bragðlauka mataráhugamanna um allan heim - Brennda baskneska ostakakan. Þessi einfaldi en grípandi eftirréttur kemur frá Baskalandi á Norður-Spáni og aðdráttarafl hans felst í óhefðbundnum sjarma hans.


Brennda baskneska ostakakan, eða "Tarta de Queso," er eftirréttur sem gerir uppreisn gegn hinni hefðbundnu ostaköku. Það sem gerir þessa köku alveg einstaka er mínimalísk uppskriftin og staðreyndin að það þarf ekki að baka hana í vatnsbaði. Kakan er búin til úr fáum hráefnum - rjómaosti, sykri, rjóma, eggjum, hveiti og stundum vanillu og svo bökuð við háan hita sem "brennir" á kökunni toppinn, þó aðeins allra ysta lagið, því innvolsið er rjómakennd fullkomnun. Skorturinn á skorpu gerir rjómalöguðu ostakökubragðinu kleift að skína í gegn og brenndi toppurinn gefur æðislegt karamellubragð!


Fyrir þess uppskrift þarft skál, handhrærivél, 20 cm springform mót, handhrærivél og bökunarpappír. Best er að baka hana daginn áður en á að bera hana fram þar sem hún þarf að jafna sig í kæli yfir nótt.

Rjómaostur, 500 g

Rjómi, 350 ml

Sykur, 180 g

Egg, 5 stk

Hveiti, 35 g

Vanillustöng, 1 stk (eða 1 tsk vanilludropar)

  1. Forhitið ofn í 220°C með blæstri.

  2. Smyrjið 20cm springform mót með smjöri eða spreytið með bökunarspreyi. Takið eina örk af bökunarpappír og krumpið saman (það gerir auðveldara að koma pappírnum fyrir í mótinu). Komið pappírnum fyrir í mótinu og látið kannta pappírsins standa upp úr þar sem kakan lyftist svolítið við bökun. Spreyið pappírinn svo með bökunarspreyi eða smyrjið með smjöri.

  3. Setjið öll hráefnin í skál og þeytið með handþeytara þar til alllt hefur samlagast að fullu (fræhreinsið vanillustöngina og notið bara fræin).

  4. Hellið blöndunni í mótið og færið varlega inn í ofn. Bakið í 50 mín eða þar til toppurinn er búinn að taka dökkan lit en kakan er þó "jiggly" í miðjunni. Kakan mun lyftast svolítið við bökun en falla þegar hún kemur úr ofninum.

  5. Takið kökuna úr ofninum og látið standa í 1 klst. Færið svo í ísskáp og kælið yfir nótt.

  6. Fjarlægið bökunarmótið og losið bökunarpappírinn varlega frá áður en kakan er skorin.

  7. Mér þykir gott að bera kökuna fram með sykruðum jarðarberjum, en það er mjög einfalt að útbúa þau.


Jarðarber, 250 g

Sítróna, 1 stk

Sykur, 2 msk

  1. Skerið toppana af jarðarberjunum og skerið berin svo í fernt. Setjið í skál með 2 msk af sykri og rífið svolítinn sítrónubörk saman við (varist að taka hvíta undirlagið með). Kreistið smá sítrónusafa saman við og blandið vel saman. Hyljið og setjið í kæli í 30 mín eða þar til bera á kökuna fram.





bottom of page