Ljúffengur lax bakaður í smjöri bragðbættu með kóríander, límónu, hvítlauk og hunangi. Borinn fram með krydduðum grjónum og fersku lárperusalati.
Fullkominn kvöldmatur á undir 30 mín!

Fyrir 4:
Lax, 800-1000 g
Hunang, 2 msk
Límóna, 1 stk
Hvítlauksrif, 2 stk
Smjör, 80 g
Kóríander, 10 g
Klettasalat, 75 g
Smátómatar, 200 g
Lárpera, 1 stk
Radísur, 2 stk
Lítill rauðlaukur, 1/4 stk
Basmati hrísgrjón, 2 dl
Fiesta de Mexico krydd, 2 tsk / Pottagaldrar
Stillið ofn á 200 °C yfir og undir hita
Saxið kóríander smátt og rífið börkinn af límónunni. Setjið smjörið í lítinn pott og stillið á vægan hita. Pressið 2 hvítlauksrif saman við og kreistið safann úr ½ límónu út í pottinn. Hrærið í þar til smjörið er bráðnað, takið þá af hitanum og hrærið hunangi og kóríander saman við ásamt smá salti.
Setjið 3 dl af vatni í lítinn pott ásamt smá salti og náið upp suðu. Bætið hrísgrjónum og Fiesta de Mexico kryddblöndu út í pottinn og lækkið hitann svo það rétt kraumi í pottinum. Látið malla undir loki í 12-14 mín. Takið pottinn af hitanum og látið hrísgrjónin standa undir loki í 10 mín.
Skerið laxinn í hæfilega bita og setjið í eldfast mót. Saltið laxinn og dreifið svo kóríander- límónusmjöri yfir hann (berið restina af smjörinu fram með til hliðar).
Bakið laxinn í miðjum ofni í um 15 mín eða þar til hann er fulleldaður.
Sneiðið radísur og rauðlauk þunnt og skerið tómata og lárperu í bita. Setjið í skál með klettasalati, nokkrum dropum af extra virgin ólífuolíu, smá límónusafa og salti á milli fingra. Blandið vel saman.
Comentários