top of page

Hoisin pulled pork bao buns með gochujang majó og sesam salati

Updated: Mar 21

Hér er komin algjör veisla! Dúnmjúkar bao bollur með rifnu grísakjöti sem er velt upp úr bragðmikilli hoisin sósu og borið fram með krönsí sesam salati og spicy gochujang majó.


Mæli svakalega mikið með fyrir helgina!


Fyrir 2:

Grísahnakki, 350 g

Bao buns, 6  stk/ Fást frosnar í Fiska

Rauðkál, 150 g

Vorlaukur, 25 g

Gulrót, 80 g

Radísur, 2 stk

Hoisin sósa, 100 ml / Ég notaði Lee Kum Kee

Sesamdressing Kewpie, 30 ml / Fæst í Melabúðinni

Sesamfræ ristuð, 10 ml

Salthnetur, 20 g

Kóríander, 5 g

Gochujang, 10 ml

Japanskt majónes, 90 ml


  1. Leggið grísahnakka í lítið eldfast mót, saltið lauslega á báðum hliðum og setjið botnfylli af vatni í mótið. Lokið mótinu þétt með álpappír og bakið í miðjum ofni við 150° með yfir og undir hita í 2-3 klst eða þar til kjötið er orðið lungamjúkt og losnar auðveldlega í sundur þegar togað er í það með 2 göfflum.

  2. Hellið vökvanum frá kjötinu og rífið í sundur. Smakkið til með salti ef þarf.

  3. Sneiðið rauðkál mjög þunnt, helst með mandolíni (farið varlega!). Sneiðið vorlauk, saxið kóríander og salthnetur. Rífið gulrót með grófu rifjárni. Setjið allt saman í skál með sesamdressingu og blandið vel saman rétt áður en maturinn er borinn fram.

  4. Hitið smá olíu á pönnu við miðlungshita. Bætið rifnu grísakjöti út á pönnuna og steikið svo í stutta stund þar til kjötið fer að taka á sig lit. Bætið hoisin sósu út á  pönnuna og blandið vel saman við kjötið. Smakkið til með salti og hitið í gegn. Stráið sesamfræjum yfir kjötið þegar það er tilbúið.

  5. Penslið brauðin með vatni, raðið á ofnplötu með bökunarpappír. Hyljið með álpappír og setjið svo inn í ofn í 4-6 mín, eða þar til þau eru orðin heit og mjúk. Einnig má setja  brauðin á disk, skvetta nokkrum dropum af vatni yfir, hylja svo með plastfilmu og hita í örbylgjuofni í 1 mín.

  6. Hrærið gochujang saman við japanskt majónes og sneiðið radísur.

  7. Smyrjið bao brauðin með gochujang majó og raðið svo salati, kjöti og radísum í brauðin.



bottom of page