Mangó romm refresher
- Snorri 
- Jun 16, 2021
- 1 min read
Þessi mangó romm refresher er svo bragðgóður og svalandi að ef maður lokar augun getur maður svo svarið að maður sé staddur í sandölum á fallegri strönd á spáni.
Passið að notast við þroskað mangó og ferskan límónusafa. Það munar öllu!

Mangó purée*, 1 dl
Romm, 6 cl
Sykursíróp, 3 cl
Límónusafi, 2 cl
- Setjið öll hráefni saman í kokteilhristara ásamt klökum og hristið þar til drykkurinn er ískaldur. 
- Síið í klakafyllt glas og skreytið með myntu og límónusneið. 
Mangó purée, nóg í 4 drykki
Ferskt mangó í bitum, 300 g
Ananas safi, 1 dl
- Maukið saman í blandara þar til maukið er silkimjúkt. 






Comments