top of page

Hunangs- timían whiskey sour

Hér er mitt twist á klassískan whiskey sour. Hunangs-timían whiskey sour úr heimalöguðu hunangs- timían sírópi og silkimjúkri eggjafroðu. Mæli með!

Hunangs- timían whiskey sour:

Viskí, 6 cl / T.d. Makers Mark

Nýkreistur sítrónusafi, 3 cl

Hunangs- timían síróp*, 3 cl

Eggjahvíta, 1 stk


  1. Setjið öll hráefnin í kokteilhristara og hristið vel í 15 sekúndur til þess að mynda góða froðu.

  2. Bætið við klökum og hristið vel í nokkrar sek þar til drykkurinn er ískaldur.

  3. Síið í kælt kokteilglas og skreytið með timíangreinum.


Hunangs- timían síróp:

Hunang, 6 cl

Vatn, 6 cl

Timíangreinar, 8 stk


  1. Hitið vatn að suðu og hellið yfir hunangið. Hrærið aðeins í þar til hunangið hefur bráðnað.

  2. Bætið timíangreinum út í og látið standa í 30 mín. Fjarlægið svo timíangreinarnar.


Þessi uppskrift af sírópi nægir í 4 kokteila en hana má auðveldlega skala upp.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Vínó vínklúbb


bottom of page