top of page

Cherry Tequila Smash

Sérstaklega ljúffengur og frískandi kokteill úr ferskum kirsuberjum og tekíla. Þessi er er klárlega kominn ofarlega á uppáhaldslistann!

Cherry tequila smash:

Kirsuber, 5 stk

Tequila silver, 2,5 cl

Grenadine síróp, 1,5 cl

Angustora bitter, 3-4 döss

Sódavatn

  1. Fjarlægið stilkinn og steininn úr kirsuberjunum, setjið í kokteilhristara og stappið berin vel.

  2. Bætið tequila, bitterum og sírópi út í hristarann ásamt klaka og blandið vel saman.

  3. Hellið í kælt viskíglas fyllt af muldum klökum. Toppið með sódavatni og skreytið með kirsuberi.

bottom of page