top of page

Súkkulaðibita smákökur með heslihnetum og sjávarsalti

Updated: Feb 25, 2022

Varúð! Þessar kökur eru gríðarlega ávanabindandi og það er með öllu ómögulegt að fá sér bara eina!

Súkkulaði, heslihnetur og salt passa svo afskaplega vel saman í þessum smákökum sem eru með smá stökkum köntum en mjúkri miðju.


18 kökur:

Smjör (ósaltað), 225 g

Púðursykur, 180 g

Sykur, 120 g

Egg, 1 stk

Vanillufræ, 0,5 tsk / Rapunzel (má líka nota 2 tsk vanilludropa)

Hveiti, 210 g

Borðsalt, 1,25 tsk

Lyftiduft, 0,5 tsk

Matarsódi, 0,25 tsk

Súkkulaðibitar, 300 g

Heilar heslihnetur, 60 g

Flögusalt, 2 msk

  1. Forhitið ofn í 190°C með yfir og undirhita.

  2. Bræðið smjörið. Hrærið vandlega saman bráðið smjör, púðursykur og sykur með góðri sleikju þar til allt hefur samlagast að fullu. Þetta tekur 1-2 mín með handafli.

  3. Hrærið eggið því næst saman við ásamt vanillufræjum þar til blandan er orðin glansandi og eggið hefur samlagast að fullu. Þetta tekur um 1 mín með handafli.

  4. Bætið hveiti, borðsalti, lyftidufti og matarsóda út í skálina og hrærið þar til til allt hefur samlagast.

  5. Saxið heslihnetur og bætið út í skálina ásamt súkkulaðibitunum og blandið vel saman.

  6. Leggið ofnpappír á bökunarplötu.

  7. Myndið 6 kúlur svipaðar að stærð og golfkúlur og raðið á bökunarplötu með góðu millibili þar sem kökurnar dreifa svolítið úr sér.

  8. Bakið í 8-10 mín í miðjum ofni. Stráið sjávarsalti yfir kökurnar þegar þær koma úr ofninum og látið kólna í nokkrar mín á plötunni áður en kökurnar eru færðar á kæligrind.

  9. Endurtakið með restina af deiginu.



bottom of page