top of page

Sumarleg Sangria með jarðarberjum og bláberjum

Sangria er vinsæll sumardrykkur á Spáni sem er auðvelt að sníða að eigin smekk með ávaxtavali. Skerið ávexti, hrærið öllu nema sódavatninu saman við, kælið og njótið í góðra vina hópi!

Sangria:

Adobe Reserva - Cabernet Sauvignon, 1 flaska / 750 ml

Appelsínusafi, 300 ml

Hlynsíróp, 60 ml + meira eftir smekk

Brandý, 120 ml + meira eftir smekk

Appelsína, 1 stk

Epli, 1 stk

Jarðarber, 200 g

Bláber, 100 g

Sódavatn, 330 ml


  1. Skerið appelsínu í þunnar sneiðar og epli og jarðarber í bita.

  2. Blandið öllum hráefnum saman í a.m.k 1,5 ltr könnu. Smakkið til með brandý og hlynsírópi. Geymið í kæli í 2 klst.

  3. Toppið með sódavatni og berið fram með klökum.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Vínó vínklúbb

Comments


bottom of page