Ef þú elskar lakkrís súkkulaðið frá Omnom þá er þetta brúnku uppskrift fyrir þig!
Hér nota ég gömlu góðu brúnku uppskriftina mína sem er búin að sanna sig í gegnum árin en bæti út í hana krömdu Omnom lakkrís crunch, en það gefur henni þetta frábæra lakkríssúkkulaði bragð og skemmtilega áferð. Alveg hættulega gott!
Smjör, 115 g
Kakóduft, 50 g
Sykur, 125 g
Púðursykur, 125 g
Vanilludropar, 1 tsk
Egg, 2 stk
Salt, 1/4 tsk
Hveiti, 60 g
Lakkrís Omnom Krunch, 1 poki
Súkkulaðibitar, 1 dl (75 g) / T.d. Ghirardelli eða Kirkland
Hitið ofn í 180 °C.
Smyrjið 20 cm brúnkuform með smjöri og leggið bökunarpappír í formið svo auðveldara sé að ná kökunni upp úr því.
Bræðið smjörið og pískið því vandlega saman við kakóduft, sykur, púðursykur og vanilludropa. Pískið svo 1 eggi í einu saman við blönduna þar til áferðin er orðin slétt.
Hrærið hveiti og salti saman við blönduna þar til allt hefur samlagast.
Setjið lakkrís Omnom Krunch í poka og berjið það með t.d. kökukefli þar til allar kúlurnar eru brotnar.
Blandið súkkulaðibitum og brotnu Omnom Krunch saman við blönduna og hellið henni svo í brúnkuformið.
Bakið kökuna í um 22 mín í miðjum ofni eða þar til tannstöngull kemur nánast hreinn úr miðju kökunnar.
Leyfið brúnkunni að kólna áður en hún er fjarlægð úr forminu og skorin í bita. Mér þykir best að setja kökuna aðeins inn í ísskáp áður en ég sker hana, en þá er auðveldara að skera hana í fallega bita
Comments