Ég geri rosalega oft tacos í matinn fyrir okkur fjölskylduna enda frábær leið til að framreiða bragðmikinn og skemmtilegan mat á stuttum tíma.
Þessi uppskrift slær ekki slöku við og er tilbúin á innan við 20 mín frá byrjun til enda og svo er hún ótrúlega ljúffeng í þokkabót. Við erum ekki að hata það!
Fyrir 2:
Mexíkópylsur (sterkar), 300 g / Frá Ali
Litlar tortillur, 8 stk / t.d. white corn tortilla frá Old El Paso
Avocado, 1 stk
Rauðlaukur, 1/4 lítill
Hvítlaukur, 1 rif
Kóríander, 6 g
Smátómatar, 125 g
Límóna, 1 stk
Radísur, 2 stk
Íssalat eða Romaine, 50 g
Japanskt majónes, 50 ml
Sýrður rjómi, 50 ml
Salsa sósa, 30 ml
Hvítlauksduft, 0,5 tsk
Hot sauce eftir smekk / t.d. Cholula green pepper
Stillið ofn á 150°C með yfir og undir hita.
Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma, salsa sósu og hvítlauksduft. Smakkið til með salti og geymið svo í kæli.
Setjið Mexíkópylsur í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrynum þar til áferðin á pylsunum er svipuð og hakki.
Skerið tómata og avocado í bita, saxið rauðlauk eftir smekk, pressið hvítlauksrif og saxið kóríander. Setjið allt saman í skál ásamt smá skvettu af ólífuolíu og rífið límónubörk saman við. Smakkið til með salti.
Sneiðið salat í þunnar ræmur og setjið í skál. Sneiðið radísur mjög þunnt og setjið í skál með smá köldu vatni.
Vefjið tortilla vefjum inn í álpappír og hitið í ofni þar til vefjurnar eru mjúkar og heitar.
Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið hökkuðu pylsunar í nokkrar mín þar til kjötið er farið að brúnast fallega.
Raðið sósu, salati, kjöti og avocado salsa í tortilla vefjurnar. Toppið með radísum og ykkar uppáhalds hot sauce.
Kommentare