top of page

Gourmet pestó pasta

Updated: Jun 13, 2018


Ég er algjör pasta grís og þykir fátt betra en diskur af bragðmiklu bolognese. Hér er þó á ferðinni eitthvað annað en hið hefðbundna bolognese sem er þó alveg jafn ef ekki örlítið ljúffengara. Ég mæli sérstaklega með að nota Roasted pepper pesto'ið frá Sacla í þennan rétt sem og Mezzi Paccheri pasta (stóri hringir, fæst í Hagkaup), þó hvaða pasta sem er gangi vissulega upp.

 

Fyrir 4:

Nautahakk, 500 g

Laukur, 1 stk, Saxaður

Hvítlauksrif, 1 stk, Saxaður smátt

Grísakraftur, 1 teningur

Rautt pestó, 1 lítil krukka (t.d. Sacla - Roasted pepper)

Tómatpúrra, 2 msk

Rifinn mozzarella ostur, 50 g

Parmesan ostur, 15 g

Chili flögur, 1-2 ml

Basil, nokkur lauf

Gott pasta (t.d. mezzi paccheri), 250 g

 
  1. Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum en geymið um 150 ml af pastavatni áður en því er hellt frá.

  2. Hitið 1 msk olíu á pönnu við miðlungshita og steikið laukinn þar til glær og mjúkur.

  3. Hækkið hitann ögn og bætið hakki út á pönnuna. Steikið hakkið þar til brúnt og bætið þá hvítlauk út á og steikið í 1-2 mín til viðbótar.

  4. Bætið krafti, tómatpúrru, chili flögum og krukku af rauðu pestó út á pönnuna og lækkið hitann ögn. Látið malla undir loki í 15 mín

  5. Bætið við pastavatni, 1 msk í einu út í kjötsósuna og hrærið vel þar til kjötsósan er orðin nægilega blaut og búin að þykkjast svolítið (ath. við viljum ekki hafa fljótandi sósu). Sirka 100-150 ml.

  6. Rífið parmesan og hrærið saman við kjötsósuna ásamt mozzarella osti. Saxið basil og stráið yfir.

  7. Berið fram með hvítlauksbrauði og/eða fersku salati.

Comentarios


bottom of page