Frábær Dulce de Leche brúnka sem er örlítið þétt í sér en þó fullkomin undir tönn og hlaðin af súkkulaði.
Mér þykir þessi best með ísköldu mjólkurglasi þegar hún er búin að fá að fara inn í kæli og þéttast svolítið upp eða þá að velgja hana upp í stutta stund og njóta hennar með góðum ís.
Smjör, 115 g
Súkkulaði 56-60%, 75 g
Kakóduft, 50 g
Púðursykur, 250 g
Vanilludropar, 1 tsk
Egg, 2 stk
Borðsalt, 1/4 tsk
Hveiti, 80 g
Súkkulaðibitar, 1 dl
Dulce de Leche, 1 dl
Flögusalt eftir smekk
Hitið ofn í 180 °C yfir og undir hita.
Smyrjið 20 cm brúnkuform með smjöri og leggið bökunarpappír í formið svo auðveldara sé að ná kökunni upp úr því.
Saxið súkkulaðið og setjið í skál með smjörinu. Bræðið smjörið og súkkulaðið yfir heitu vatnsbaði eða í nokkrum hrynum í örbylgjuofni.
Hrærið súkkulaði & smjörblönduna vandlega saman við kakóduft, púðursykur og vanilludropa með handþeytara. Hrærið svo 1 eggi í einu saman við blönduna þar til áferðin er orðin slétt.
Hrærið hveiti og salti saman við blönduna með sleif þar til allt hefur samlagast og blandið svo súkkulaðibitum saman við.
Setjið um helminginn af deiginu í kökuformið, dreifið Dulce de Leche í nokkrum litlum klessum yfir deigið og dreifið svo restinni af deiginu yfir.
Stráið svolitlu flögsalti yfir kökuna og bakið í miðjum ofni í um 25 mín eða þar til tannstöngull kemur nánast hreinn úr miðju kökunnar.
Leyfið brúnkunni að kólna áður en hún er fjarlægð úr forminu og skorin í bita.
Comments